þegar ellin færist yfirErla Björk Gísladóttir

...eftir nokkrar mínútur mun ellin hellast yfir mig - ég verð örugglega þunglynd allan daginn á morgunn..

nnneeee djóks! Svalur maður á bara afmæli!!

Wonderful CopenhagenErla Björk Gísladóttir

Köben var dásamleg!
Það var lygilega gaman að koma aftur í þessa stórkostlegu borg og fá smá svona "heima" tilfinningu! Fyrsta kvöldið þagði ég allan tímann og horfði bara í kringum mig í strætó og reyndi að átta mig á hvar ég væri stödd Hlæjandi

Það var náttúrulega lang best að vera með vinkonum mínum! Ég tók slatta af myndum og þær eru hér!
 Lefyum myndunum bara að segja sína sögu!

Agalega langar mig að flytja aftur út Óákveðinn

MyndirErla Björk Gísladóttir

Var að setja inn myndir af íbúðinni fyrir Salóme mína....og fleiri sem komast ekki að skoða. Hrefna: Þú verður sko líka að koma sjálf hehe!

Vá langt síðan ég bloggaði... margt og mikið búið að gerast! Við erum komin heim frá Spáni og þessi ferð var bara sú besta í heimi! Ég naut þess í ystu æsar að vera í svona afsöppunarferð, þó það hefði nú verið í lagi hjá okkur frænkum að djamma amk einu sinni hehe. En þetta var yndislegt og rosalega notalegt að vera  með fjölskyldunni, vantaði bara Nönnu Mjöll og þau og Óla besta bróðir og fjölskyldu...

Þegar við komum heim þá var bara farið á fullt við að gera tilbúið og flytja. Ásta skrapp á Skagann og hjálpaði okkur að gera allt ready og útkoman er æðisleg. Ég á fallegustu íbúð í heimi hahaha! Finnst það ekki öllum með fyrstu íbúðina? Ég er svo búin að búa hér í tæpar 3 vikur og þetta er sko lífið. Voða nice samt að borða alltaf hjá múttu og pápa!

Okkur í SKO var boðið í massa óvissuferð með Mömmu ehf um daginn og við skemmtum okkur örugglega manna best hehe... Bjuggumst ekki við því að enda á djamminu í bænum langt fram eftir nóttu - en viti menn við djömmuðum af okkur rassgatið og drukkum óhóflega. Þetta var meiriháttar ferð! Þeim hjá Mömmu finnst ég líka ógisslega skemmtileg og ég er komin í stjórn starfsmannafélagsins... Týpísk Erla segja einhverjir hahaha!

Ég sakna Salóme fáranlega og hlakka óendanlega til að heimsækja hana til DK núna eftir tæpar tvær vikur!!! Get ekki beðið eftir að hanga með henni og Belindu og auðvitað Reyni..vantar sko báðar vinkonur mínar til að chilla með mér í fallegu íbúðinni tíhíhí! Það verður líka agalega notalegt að knúsa aðeins elsku Köben og labba um göturnar sem ég gekk um á hverjum degi...fara aðeins í CBS, kíkja í litla mollið mitt og sötra bjór á Strikinu ahhh.....

Fréttir kannski?Erla Björk Gísladóttir

Vá hvað ég er ekki í blogg-gírnum þetta sumarið!


Sumarið er samt að verða búið og það gjörsamlega flaug fram hjá mér, búið að vera endalaust mikið að gera! Hef verið að vinna alveg einu númeri of mikið í sumar og þá sérstaklega síðustu vikur þar sem ég var að leysa strákana hérna í vinnunni af ásamt því að vinna mínu vinnu! Svo hef ég verið að þykjast að gera íbúðina mína fallega, þ.e. ég stend við hliðina á vinnandi manninum honum pabba og rétti honum þá hluti sem hann vantar Glottandi En annars er allt að smella á Stillholtinu - búið að flísaleggja forstofuna og lítið eftir að parketleggja! Við mæðgunar höfum verið duglegar í IKEA og miklum fjárhæðum hefur verið eytt þar! Gardínurnar eru klárar og ég á bara eftir að kaupa myrkratjöld og þá er ég góð í bili! Ég er líka orðin all svakalega spennt að flytja inn - allir að spyrja hvenær ég flytji nú og svona þannig það verður gaman að fá einhverja dagssetningu á þetta. En þó að íbúðin mín sé nokkuð ready þá verða allar íbúðirnar afhentar á sama tíma. Vonandi fæ ég að flytja inn á svipuðum tíma og ég kem heim frá Spáni!

Já það er aldeilis farið að styttast í sumarfríið mitt! Ég er að fara í sumarfrí í fyrsta skipti - mjög notaleg tilhugsun! Eftir 12 daga fljúgum við familían á vit ævintýranna á Spáni og það verður ljúft! Er búin að finna út úr því að H&M er bara rétt hjá hótelinu...$$?? En þann sama dag og við förum út fer hún Salóme mín ásamt Reyni til Köben til að vera í tvö ár!!! Shit hvað það verður skrýtið að hafa hana ekki... En við redduðum því flott og ég ætla að kíkja á þau í haust og auðvitað líka hana Belindu mína!

Verslunarmannahelgin átti svo bara að fara í vinnu en ég ákvað nú að sletta aðeins úr klaufunum á föstudagskvöldið og vann minna á laugardaginn í staðinn.. var svo orðin ansi slöpp þegar leið á laugardag en ég hélt nú bara að það væri mitt eigið sjálfskaparvíti frá kvöldinu áður! En þá var stelpan orðin ansi hreint slöpp og á sunnudeginum var ég ekki vinnufær! Ég fór samt upp í sumarbústað til m&p og ætlaði að liggja þar í veikindum en ég hresstist bara ekki! Endaði svo með bráðaofnæmiskast á þriðjudagsnóttina og var brunað með mig á Sjúkrahúsið heima þar sem dælt var í mig lyfjum og svona skemmtilegt og ég fór því barasta ekkert í vinnu fyrr en í gær! Allt að gerast - verður nú að vera smá drama í þessu Svalur

Læt ef til vill í mér heyra þegar sumarfríið er búið!

22.ágúst!Erla Björk Gísladóttir

Ég og Edda Ósk erum á leiðinni til Spánar 22. ágúst!!!
Verðum í tvær vikur með ma & pa og Bróa og Co Svalur Edda fer í próf kl 09:00 þarna 22. og við sækjum hana í prófið og brunum beint út á völl og fljúgum kl 14:35 og lendum í Alicante kl 21:25!
Hótel Bali!!

Þetta er Hótelið sem við verðum á!


Og þetta er hluti af sundlaugargarðinum!!
Öss hvað þetta verður mikil snilld! Ekki slæmt að fá þessar fréttir svona þegar maður er að útskrifast Ullandi

FerðmálafræðingurErla Björk Gísladóttir

Gráðan  í höfn!

Búin að útskrifast - komin með skírteinið í hendurnar! Gestirnir á leiðinni í veislu hérna hjá ma & pa!
Langar samt líka mikið að vera á leið í partý hjá Fríðu sætu - en ég get víst ekki verið á tveimur stöðum í einu Svalur Sendi henni bara pakka í staðinn svo hún sakni mín ekki of mikið tíhíhí!


Kveðja,

Erla Björk - ferðamálafræðingur!!!

Hvar er sumarið?Erla Björk Gísladóttir

Það er búið að vera svo agalega gaman hjá mér síðustu daga, vinnan er skemmtileg, Skaginn er yndislegur og bara gleði gleði framundan!

Útskrifast eftir nokkra daga - mikil gleði sem fylgir því! Líka ótrúlega gaman að fá að útskrifast með svona mörgum góðum vinkonum, ég og Fríða mín höfum fylgst að alveg síðan við vorum tveggja ára kjánalingar í leikskóla og við munum meira að segja útskrifast úr Háskóla saman - 21 árs samfylgd rúmlega Brosandi Svo verða líka Salóme mín, Rúna brúna og Katarína þarna... ótrúlega gaman!

Langaði samt sjúkt mikið að halda útskriftarpartý! En það gengur víst ekki, verður smá familíuboð heima hjá ma og pa á laugardagskveldinu þannig ég var að hugsa um helgarnar fyrir og eftir en að sjálfsögðu lætur maður óvissuferð Ofurskutlanna ganga fyrir öllu !! Og helgina fyrir er víst einhver önnur veisla þannig ekki gengur það upp! En ég held bara sameiginlega innflutnings- og útskriftarveislu þegar ég fæ afhent hehe...

Er allan daginn að hugsa um þessa blessuðu íbúð - eðlilega! - alltaf að skipuleggja og svona fanzý í huganum tíhíhí, verslaði hellings í Ikea um daginn, keypti það allra mikilvægasta sem er að sjálfsögðu vínrekkinn minn! Hef samt lúmskan grun um að flöskurnar í rekkanum eigi ekki eftir að vera fullar most of the time Svalur

Skemmtið ykkur vel um helgina - endilega kíkið í ís í sjoppunni!

Bleik og græn skýErla Björk Gísladóttir

Ég er búin að svífa á bleiku skýi í allan dag og brosa hringinn! Ég elska svona daga Svalur

Tjekkaði á Uglunni í morgun til að athuga með einkunnina fyrir ritgerðina, bjóst nú alls ekki við því að hún væri komin, en viti minn það var búið að skella henni inn! Ég er alveg yfir mig stolt af 8-unni sem ég fékk - kom mér virkilega á óvart hvað mér gekk vel! Afar notalegt þegar einkunn kemur mér á óvart!

Var næstum búin að kaupa mér far til Köben med det samme, aðeins að knúsa hana Bellu mína og svona en stelpan var skynsöm (hóst, mamma var skynsöm, hóst) og ætla frekar að renna mér í Ikea á laugardaginn og kaupa hellingz fallegt í nýju fallegu íbúðina mína Ullandi Er orðin agalega spennt að fá hana afhenta, þó svo að það sé langt þangað til hehe.

Langaði bara að deila gleðinni með ykkur eeeelzkurnar! Takk fyrir kveðjurnar í síðustu bloggum, ótrúlega gaman!

p.s. Kristín - ég er á leiðinni! p.p.s. - Hrefna, þú færð að standa við rúntinn hehe

LofturErla Björk Gísladóttir

Áðan fór  ég í 10/11 í Lágmúla þar var agalega sætur strákur að afgreiða mig - hann hét Loftur!

Smá einkahúmor fyrir örfáar vinkonur Svalur

B.Sc ritgerð!Erla Björk Gísladóttir

Ég er búin!

Fyrir um klukkstund gekk ég út úr Öskju - búin að skila ritgerðinni á skrifstofu, til leiðbeinanda og prófdómara!

Þetta þýðir að ég er BÚIN MEÐ HÁSKÓLANÁMIÐ MITT!!! Ullandi

Núna er ég orðin íbúðareigandi og næstum komin með gráðu :)

Aðalvalmynd

Auglýsing